Um okkur

Teymið á bak við tjöldin

Creative Filmmaking leigir bíla, tæki og alls konar búnað til kvikmynda- og sjónvarpsverkefna á Íslandi. Við byrjuðum sjálf á setti og flotinn er því byggður í kringum það sem framleiðslur raunverulega þurfa.

Við höfum unnið í stórum sem smáum verkefnum og á það við um kvikmyndaverkefni, þáttaseríur, tónlistarmyndbönd og auglýsingar um land allt. Höfum við þar með mikla reynslu af því hvað hvert verkefni þarf og erum alltaf til í að hjálpa við alls konar skipulagningu. Sendu okkur línu og við sjáum hvernig við getum hjálpað.

Til leigu hjá okkur eru meðal annars kassabílar með lyftu, sendibílar, 4x4 pallbílar, hjólhýsi fyrir leikara, kerrur og sexhjól, ásamt rafstöðvum, hitablásurum, ljósum og öðrum tökubúnaði. Við erum staðsett í Reykjavík en afhendum hvert á land sem er, hvort sem tökurnar fara fram á hálendinu, úti á landi eða innanbæjar. Og þó flotinn sé byggður fyrir kvikmyndagerð leigjum við líka til einstaklinga og fyrirtækja: kassabíla í búslóðaflutninga, hjólhýsi í sumarfríið og kerrur í helgarverkefnin.

Hver bíll er þjónustaður, þrifinn og afhentur tilbúinn á sett.

9+

Bílar í flotanum

24/7

Aðstoð á tökudögum

100%

Þjónustusvæði

Ertu að skipuleggja tökur á Íslandi?

Segðu okkur hvað þú ert að taka upp og við setjum saman réttu bílana og tilboð, án skuldbindinga.

Óska eftir tilboði